Jói Berg og félagar enn án sigurs

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Raul Jimenez
Raul Jimenez vísir/getty
Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn þegar Burnley heimsótti nýliða Wolverhampton Wanderers í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Hvorki hefur gengið né rekið hjá Jóhanni og félögum í upphafi leiktíðar og á því varð engin breyting í dag.

Úlfarnir stjórnuðu leiknum frá upphafi til enda og voru miklu betri aðilinn. Þeim tókst þó ekki að nýta yfirburðina til að skora mörg mörk.

Engu að síður náðu þeir inn sigurmarki en það gerði Mexíkóinn Raul Jimenez eftir rúmlega klukkutíma leik.

Burnley hefur eitt stig eftir fyrstu fimm umferðirnar og hefur nú tapað fjórum leikjum í röð. Nýliðar Wolves hins vegar í fínum málum; hafa átta stig í 9.sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira