Sport

Fyrsta heimsókn UFC til Rússlands

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Vinskapur hjá Hunt og Oleinik fyrir bardaga þeirra.
Vinskapur hjá Hunt og Oleinik fyrir bardaga þeirra. Vísir/Getty
UFC heldur sitt fyrsta bardagakvöld í Rússlandi í dag. UFC hefur lengi reynt að komast inn á rússneska markaðinn og verða það þeir Mark Hunt og Aleksei Oleinik sem mætast í aðalbardaganum í kvöld.

UFC hefur talað um að halda bardagakvöld í Rússlandi í langan tíma. Því markmiði verður loksins náð í kvöld þegar þeir halda bardagakvöld í minni kantinum á Olimpiyskiy Stadium í Moskvu.

Talið var að fyrsta heimsókn UFC til Rússlands yrði risastór enda hafa bardagasamtökin svo lengi reynt að komast þar inn. Bardagaaðdáendur í Rússlandi vonuðust eftir því að sjá Rússann Khabib Nurmagomedov mæta Conor McGregor í höfuðborginni og sérstaklega eftir að Dana White, forseti UFC, sagði að Conor hefði óskað eftir því að berjast við Khabib í Rússlandi. Sá bardagi mun hins vegar fara fram í Las Vegas þann 6. október.

Þegar bardagakvöldið var fyrst gert opinbert bauðst hver einasti Rússi í UFC til þess að berjast á bardagakvöldinu. Það var þó Rússinn Aleksei Oleinik sem var valinn í aðalbardaga kvöldsins. Oleinik er fæddur og uppalinn í Úkraínu en fékk rússneskan ríkisborgararétt árið 2015.

Upphaflega átti Oleinik að mæta Fabricio Werdum en þegar Werdum féll á lyfjaprófi kom Mark Hunt í hans stað (Werdum fékk svo í vikunni tveggja ára keppnisbann). Stílar Hunt og Oleinik gætu ekki verið ólíkari en Hunt leitast eingöngu eftir rothögginu á meðan Oleinik leitast nær eingöngu eftir uppgjafartakinu.

Báðir eiga þeir það sameiginlegt að vera í eldri kantinum miðað við bardagamann í UFC og hafa séð tímana tvenna. Mark Hunt er 44 ára gamall og er með yfir 70 bardaga í kickboxi og MMA. Oleinik er 41 árs og með 68 bardaga í MMA. Mikil reynsla þarna á ferð.

Heimamaðurinn Oleinik hefur klárað 46 af 56 sigrum sínum með uppgjafartaki sem er mögnuð tölfræði. 13 sinnum hefur hann unnið eftir svo kallaða Ezekiel hengingu og er það met í MMA. Oleinik fer í henginguna úr furðulegustu stöðum í gólfinu og nær að klára menn á einhvern ótrúlegan hátt. Oleinik sagði þó fyrr í vikunni að það gæti verið erfitt að ná Hunt í þessa mögnuðu hengingu enda er Hunt með svo „stóran og feitan“ háls.

Bardaginn gæti orðið áhugaverður en það má segja að stóru kallarnir fái sviðsljósið í kvöld. Andrei Arlovski mætir Shamil Abdurakhimov í þungavigt og þá munum við sjá endurkomu Nikita Krylov í UFC en hann mætir Jan Blachowicz í léttþungavigt.

Bardagakvöldið verður sýnt á Stöð 2 Sport 3 en bein útsending hefst kl. 18:00.

MMA

Tengdar fréttir

Drullaði yfir forseta UFC á Instagram

UFC-bardagakappinn Mark Hunt brjálaðist er hann var tekinn af UFC-kvöldi í Sydney. Hann drullaði yfir forseta UFC, Dana White, og hótar málsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×