Fótbolti

Rúnar Alex fékk á sig þrjú mörk í tapi

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Rúnar Alex Rúnarsson
Rúnar Alex Rúnarsson
Rúnar Alex Rúnarsson stóð í marki Dijon þegar liðið fékk Angers í heimsókn í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Wesley Said kom Dijon yfir snemma leiks en eftir hálftíma leik fór allt í rugl hjá Dijon. Það nýttu gestirnir sér og skoruðu þrjú mörk á átján mínútna kafla.

Staðan í leikhléi því 1-3. Ekkert var skorað í síðari hálfleik og lokatölur 1-3 fyrir Angers.

Rúnar Alex og félagar með níu stig eftir fimm umferðir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×