Fótbolti

Mark og stoðsending frá Íslendingunum í Hollandi

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Elías Már Ómarsson í landsleik
Elías Már Ómarsson í landsleik vísir/getty
Elías Már Ómarsson var í byrjunarliði Excelsior þegar liðið heimsótti Willem || í hollensku úrvalsdeildinni í kvöld en Kristófer Ingi Kristinsson hóf leik á varamannabekk heimamanna.

Elías Már lagði upp fyrsta mark leiksins þegar Excelsior komst yfir eftir hálftíma leik. Excelsior komst svo í 0-2 á 82.mínútu og virtust vera að sigla sigrinum heim.

Kristófer Ingi og félagar voru hins vegar ekki á því en honum var skipt inná á 67.mínútu. Á lokamínútum leiksins tókst þeim að jafna metin og var það Kristófer sem gerði jöfnunarmarkið á 88.mínútu. Lokatölur 2-2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×