Fótbolti

Sjáðu mark númer 500 hjá Zlatan | Karatespark í stöng og inn

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ótrúlegur
Ótrúlegur vísir/getty
Zlatan Ibrahimovic stal senunni í MLS deildinni í nótt þó lið hans, LA Galaxy, hafi tapað 5-3 fyrir Toronto.

Sænska goðsögnin skoraði fallegasta mark leiksins þegar hann minnkaði muninn í 3-1 en jafnframt var um að ræða sögulegt mark þar sem þetta var fimm hundruðasta mark Zlatan á glæstum ferli.

Hann hefur skorað sautján mörk í 22 leikjum fyrir LA Galaxy en hann gekk til liðs við félagið í mars á þessu ári eftir algjörlega magnaðan feril í Evrópu þar sem hann lék með Manchester United, PSG, AC Milan, Barcelona, Inter, Juventus, Ajax og Malmö.

Zlatan kom sér þar með í hóp með Cristiano Ronaldo og Lionel Messi en þeir þrír eru þeir einu sem hafa náð að skora 500 mörk af þeim knattspyrnumönnum sem eru að spila í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×