Fótbolti

Sara Björk og stöllur hennar hófu titilvörnina með sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir í leik með Wolfsburg.
Sara Björk Gunnarsdóttir í leik með Wolfsburg. Vísir/Getty
Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leikinn á miðju Wolfsburg þegar liðið fékk Frankfurt í heimsókn í fyrstu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag.

Ferðalagið frá Íslandi virtist ekki sitja í Wolfsburg en síðasti leikur liðsins á undan þessum var leikurinn gegn Þór/KA í Meistaradeild Evrópu síðastliðinn miðvikudag.

Pernille Harder, Ewa Pajor og Alexandra Popp sáu um að tryggja Wolfsburg öruggan þriggja marka sigur.

Wolfsburg er ríkjandi Þýskalandsmeistari og hefur unnið deildina tvö ár í röð.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×