Fótbolti

Rooney skoraði eitt en Wright-Phillips þrjú í fjörugu jafntefli

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rooney í leik með DC United en hann færði sig yfir til Bandaríkjanna í sumar.
Rooney í leik með DC United en hann færði sig yfir til Bandaríkjanna í sumar. vísir/getty
Wayne Rooney skoraði eitt mark DC United sem gerði 3-3 jafntefli við New York Red Bulls í MLS-deildinni í kvöld.

Paul Arriola kom DC United á 25. mínútu áður en Bradley Wright-Phillips, bróðir Shaun Wright-Phillips, jafnaði metin á 41. mínútu.

Næst var svo röðin komin að Rooney sem kom DC United yfir á 64. mínútu en aftur jafnaði Wright-Phillips á 76. mínútu.

Í þriðja skiptið komst DC yfir á 87. mínútu er Luciano Acosta skoraði en Bradley Wright-Phillips fullkomnaði þrennuna í uppbótartíma og lokatölur 3-3.

DC United er í fimmtánda sæti MLS-deildarinnar en er í sjöunda sæti austurdeildarinnar.

New York Red Bulls er í öðru sætinu, bæði samanlagt og í austurdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×