Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Andri Eysteinsson skrifar
Fráfarandi forstöðumaður Orku náttúrunnar telur að brottvikning sín úr starfi hjá fyrirtækinu sé ólögmæt og ætlar að leita réttar síns af fullum þunga.

Stjórnarkona í Orkuveitunni vill láta rannsaka málið og endurráða viðkomandi ef brottvikningin reynist tilhæfulaus.

Fjallað verður um málið í fréttum Stöðvar 2. Einnig verður fjallað um konur sem eru í krabbameinsmeðferð en þær hafa neyðst til að vera lyfjalausar dögum saman þar sem lyfin eru ekki til hér á landi.

Þá verður fjallað um núvitund íslenskra þingmanna, forystusauði og Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík sem hefst í næstu viku. ​




Fleiri fréttir

Sjá meira


×