Yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar látinn fara Samúel Karl Ólason skrifar 18. september 2018 16:29 Hans-Georg Maassen. Vísir/EPA
Hans-Georg Maassen, yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar Bundesamt für Verfassungsschutz (BFV), hefur verið vikið úr starfi. Ástæða þess eru ummæli hans um að myndband af árásum á innflytjendur í borginni Chemnitz væri ekki raunverulegt. Hann mun þess í stað taka hárri stöðu í Innanríkisráðuneyti Þýskalands en deilurnar um Maassen hafa skapað talsverðan núning í stjórnarsamstarfi Kristilegra demókrata og Jafnaðarmanna á undanförnum dögum. Maassen var sömuleiðis sakaður um að hafa komið leynilegum upplýsingum í hendur fulltrúa hægriöfgaflokksins Alternativ für Deutschland (AFD). Hann hefur þó staðfastlega neitað slíku. Der Welt segir að í raun sé verið að hækka Maassen í tign. Leiðtogar ríkisstjórnarinnar voru ekki tilbúnir til að fella ríkisstjórnina vegna málsins og því var áðurnefnd leið farin.Áðurnefndar árásir áttu sér stað í tengslum við mótmælaaðgerðir gegn innflytjendum í Chemnitz sem stóðu yfir fyrr í síðasta mánuði. Jafnaðarmannaflokkurinn, sem á aðild að stjórn Merkel, hefur farið fram á afsögn Maassen, en innanríkisráðherrann Horst Seehofer hefur hins vegar komið honum til varnar. Boðað var til neyðarfundar vegna stöðunnar í dag þar sem þessi niðurstaða var ákveðin.
Þýskaland Mest lesið Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Fleiri fréttir Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar Sjá meira