Innlent

Borgarstjórn samþykkir tillögu um sumaropnun leikskóla

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Tillaga meirihlutans um sumaropnun leikskóla var samþykkt með 22 atkvæðum.
Tillaga meirihlutans um sumaropnun leikskóla var samþykkt með 22 atkvæðum. vísir/vilhelm
Tillaga borgarfulltrúa meirihlutans í borgarstjórn um að fela skóla- og frístundasviði að hefja undirbúning á tilraunaverkefni um að einn leikskóli í hverju hverfi skuli vera opinn allt sumarið árið 2019 var samþykkt í kvöld með 22 atkvæðum. Einn borgarfulltrúi sat hjá.

Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar, kynnti tillöguna og sagði hana eiga sér stoð í samstarfssáttmála meirihlutans hjá Reykjavíkurborg. Í greinargerð með tillögunni segir að tilraunaverkefnið líkist því sem tíðkist í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu á borð við Mosfellsbæ og Garðabæ en þar sameina leikskólarnir starfsemi sína í eina starfsstöð yfir sumartímann.

Borgarfulltrúar voru flestir sammála um að hér væri um jákvætt skref að ræða enda ættu ekki allir foreldrar kost á því að taka sér frí á þeim tíma sem leikskólarnir eru lokaðir.

Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands, tók fram að hún væri ekki á móti tillögunni en hefði þó áhyggjur af því hvaða áhrif breytingin og aukin opnun hefði á börn og starfsfólk leikskólanna.

Áfram verður miðað við þá reglu að börnin fái samfellt sumarfrí í að lágmarki 4 vikur en tillagan miðar að auknu valfrelsi foreldra til að skipuleggja sjálfir sumarfrí fjölskyldunnar.

Hér er hægt að lesa sér nánar til um tillögu meirihlutans í borgarstjórn um sumaropnun leikskóla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×