Erlent

Duga loforð Kim til?

Samúel Karl Ólason skrifar
Monn Jae-in og Kim Jong-un.
Monn Jae-in og Kim Jong-un. Vísir/AP
Moon Jae-in og Kim Jong-un, leiðtogar Suður- og Norður-Kóreu samþykktu fjölda aðgerða sem snúa að bættum samskiptum ríkjanna á fundi þeirra í gær. Meðal annars samþykkti Kim að loka helsta kjarnakljúfi Norður-Kóreu en þá einungis ef Bandaríkin láti af viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum í garð einræðisríkisins. Þá ætlar Kim að heimsækja Suður-Kóreu og ríkin munu í sameiningu sækjast eftir því að halda ólympíuleikana 2032.

Þá hét Kim því að veita alþjóðlegum eftirlitsaðilum aðgang að niðurrifi eldflaugapalla.

Sjá einnig: Kim ætlar að loka skotpöllum og tilraunasvæðum

Viðræðum Moon og Kim var ætlað að bæta samskipti og samstarf ríkjanna og sömuleiðis ryðja leiðina fyrir öðrum fundi Kim og Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Sérfræðingar sem Washington Post ræddi við eru ekki vissir um að loforð Norður-Kóreu séu nægjanleg til að Bandaríkin séu tilbúin í annan leiðtogafund en Trump sjálfur fagnaði fréttunum í nótt á Twitter.

Kim framfylgdi í raun ekki mörgum af þeim skilyrðum sem Bandaríkin hafa kallað eftir. Það er að veita upplýsingar um á hve mörgum stöðum og hvar kjarnorkuvopn eru framleidd. Ekki var sett fram tímalína um afvopnun Norður-Kóreu og ekki var samþykkt að hleypa eftirlitsaðilum inn í Norður-Kóreu að öðru leyti en að fylgjast með áðurnefndu niðurrifi.



Þar að auki hefur Norður-Kórea ekki gefið upp hve mörg kjarnorkuvopn þeir eiga í raun og veru.

Bandaríkin hafa farið fram á að Norður-Kórea taki markviss skref í átt að því að losa sig við kjarnorkuvopn sín, áður en létt verður á refsiaðgerðum og þvingunum.

Norður-Kórea hefur hins vegar farið fram á að létt verði á refsiaðgerðum og þvingunum, áður en þeir taka markviss skref í átt að því að losa sig við kjarnorkuvopn sín.

Þingmaðurinn Lindsey Graham, var ekki ánægður með fund Moon og Kim í gær. Hann gaf í skyn að Kim væri að spila með Suður-Kóreu og eini tilgangur fundarins hefði verið að losna við refsiaðgerðir. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin gaf nýverið út skýrslu þar sem fram kom að Norður-Kórea hefði ekki hætt kjarnorkuvopnaáætlun sinni, eins og ríkisstjórn Kim hefur haldið fram.

Bandaríkin hafa sakað Rússa og Kínverja um að grafa undan refsiaðgerðunum og jafnvel um að hjálpa Norður-Kóreu að komast fram hjá þeim. Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur á undanförnum mánuðum varið miklu púðri í að fá þjóðir heimsins til að halda þrýstingi á Norður-Kóreu og þvinga þá til að hætta kjarnorkuvopnaáætlun sinni.

Á móti kemur að Kim virðist sjálfur vera í eigin herferð til að sannfæra þjóðir heimsins um að losa Norður-Kóreu við refsiaðgerðir áður en hann tekur skref til afkjarnorkuvopnavæðingar. Það er þó loforð sem Norður-Kórea hefur gefið margsinnis áður, án þess að standa við það.

Ekkert nýtt

Bandaríkin hafa tvisvar sinnum gert umfangsmikla samninga við Norður-Kóreu um að einræðisríkið hætti við að reyna að koma upp kjarnorkuvopnum í staðinn fyrir efnahagslega aðstoð. Árið 1994 þegar ríkissjtórn Norður-Kóreu ætlaði að draga ríkið úr samningnum um bann við útbreiðslu kjarnavopna (NPT) var slíkur samningur gerður. Sömuleiðis var skrifað undir samning árið 2005. Þá hétu yfirvöld Norður-Kóreu því að stöðva kjarnavopnaáætlun ríkisins og skrifa aftur undir NPT.

Burtséð frá þessum samningum hafa fjölmörg ríki heims komið að viðræðum við Norður-Kóreu sem staðið hafa yfir allt frá níunda áratug síðustu um að einræðisríkið komi ekki upp kjarnorkuvopnum. Á þeim tíma hefur Norður-Kórea margsinnis heitið því að stöðva áætlunina en ekki staðið við það.

Melissa Hanham, sérfræðingur hjá hugveitunni Middlebury Institute of International Studies, sagði Washington Post að loforð Kim frá fundi hans og Moon myndu ekki endilega leiða til stöðvunar kjarnavopnaáætlunar einræðisríkisins. Þeir ættu fleiri framleiðslu- og tilraunastaði og þar að auki hefði Norður-Kórea tekið sambærileg skref áður og auðvelt hefði verið að endurbyggja það sem tapaðist.


Tengdar fréttir

Stefnir í annan fund með Trump

Bandaríski miðillinn Politico sagði í gær að þar í landi fylgdust stjórnvöld náið með fundinum í vikunni og reyndu að komast að því hvort grundvöllur væri fyrir öðrum leiðtogafundi Trumps og Kim




Fleiri fréttir

Sjá meira


×