Enski boltinn

Jón Daði skoraði í enn einu tapinu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Jón Daði í leik með Reading fyrr á tímabilinu.
Jón Daði í leik með Reading fyrr á tímabilinu. vísir/getty
Jón Daði Böðvarsson heldur áfram að vera eini maðurinn sem virðist geta skorað fyrir Reading í ensku B-deildinni í fótbolta.

Selfyssingurinn jafnaði fyrir Reading gegn Norwich á 72. mínútu leiks liðanna í kvöld. Norwich skoraði hins vegar sigurmarkið aðeins mínútu seinna.

Jón Daði byrjaði leikinn á bekknum og hann var aðeins búinn að vera inn á vellinum í þrjár mínútur þegar hann skoraði.

Reading er aðeins með fimm stig eftir átta umferðir og er í fallsæti í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×