Eldur kviknaði í sendibíl á Miklubraut Kristín Ólafsdóttir skrifar 5. september 2018 15:13 Frá vettvangi á Miklubraut við Klambratún. Vísir/Einar árnason
Eldur kviknaði í sendibíl á Miklubraut við Klambratún um klukkan 15 í dag. Einn dælubíll var sendur á vettvang og réðu slökkviliðsmenn niðurlögum eldsins nú á fjórða tímanum. Engin slys urðu á fólki. Opið er fyrir um Um er að ræða sendibíl frá fyrirtækinu DHL en svo virðist sem eldurinn hafi kviknað í vélarhúsi bílsins. Samkvæmt upplýsingum frá tökumanni fréttastofu á vettvangi var verið að ferja pakka úr bílnum yfir í aðra bifreið nú á fjórða tímanum.Bíllinn var töluvert brunninn að framan.Vísir/Einar árnasonBíllinn var dreginn inn á strætóakrein og hefur umferð verið hleypt aftur um Miklubraut í austurátt, en akbrautin var lokuð um tíma nú síðdegis og urðu í kjölfarið miklar umferðartafir. Að sögn varðstjóra verður bíllinn dreginn í burtu af vettvangi innan skamms. Mikill erill hefur verið hjá viðbragðsaðilum á höfuðborgarsvæðinu í dag. Sjö bíla árekstur varð á mótum Bústaðavegar og Flugvallarvegar á öðrum tímanum og þá barst tilkynning um eld í sendibílnum á Miklubraut um klukkan 15. Þá hefur slökkviliðið einnig þurft að sinna fjölmörgum útköllum vegna sjúkraflutninga nú síðdegis.Fréttin hefur verið uppfærð.Bíllinn er töluvert brunninn. Einn dælubíll var sendur á vettvang.Vísir/Einar árnason
Mest lesið Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fleiri fréttir Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Sjá meira