Fótbolti

Danir búnir að semja og stilla upp sínu besta liði gegn Wales

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Christian Eriksen verður í eldlínunni á sunnudaginn
Christian Eriksen verður í eldlínunni á sunnudaginn vísir/getty
Danska knattspyrnusambandið hefur komist að tímabundnu samkomulagi við leikmannasambandið þar í landi og munu A-landsliðsmennirnir snúa aftur í landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Wales í Þjóðadeildinni.

Danir tefldu fram liði í vináttulandsleik í gærkvöldi sem innihélt futsal-leikmenn og leikmenn í neðstu deildum Danmerkur þar sem A-landsliðsmennirnir og allir leikmenn í efstu tveimur deildunum neituðu að spila. Ástæðan var ósætti í samningi vegna ímyndarréttar þeirra og launa vegna vinnu á vegum sambandsins í auglýsingum og fleiru þess háttar.

Samkomulagið sem er nú komið á gildir til 30. september og munu samningaviðræður um lengri samning halda áfram á mánudag.

„Það er gott fyrir danskan fótbolta og landsliðið að við getum spilað þennan mikilvæga leik í Þjóðadeildinni með okkar bestu menn,“ sagði formaður DBU í tilkynninguu sambandsins.

Leikur Danmerkur og Wales fer fram á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×