Sport

Ótrúleg tilviljun í bandaríska hafnarboltanum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Brady Feigl og Brady Feigl.
Brady Feigl og Brady Feigl. Samsett mynd/Levi Weaver
Það er til fullt af alnöfnum í heiminum og það eru líka nóg til af tvíförum. Þegar tvífararnir eru líka alnafnar þá fara menn hins vegar að klóra sér í hausnunm.

Íþróttablaðamaðurinn Levi Weaver var að skoða leikmannalista hjá hafnarboltaliðum í Bandaríkjunum þegar hann gerði ótrúlega uppgötvun. Hann fann tvo nauðalíka leikmenn en það er ekki það ótrúlega heldur sú staðreynd að þeir heita sama nafni.

Levi Weaver skrifar venjulega um Texas Rangers liðið og í leikmannahópi varaliðs félagsins er kastari að nafni Brady Feigl. Oakland Athletics hefur líka kastari að nafni Brady Feigl. Þegar  Weaver bar þá saman þá fékk hann smá sjokk.





Það er erfitt að halda annað en að þetta sé sami maðurinn en þeir fæddust með fimm ára millibili. Þeir fæddur hins vegar báðir 27. dags mánaðarins. Báðir eru þeir 193 sentímetrar á hæð og nota sömu gerð af gleraugum.

Levi Weaver grínaðist með þessa uppgötvun en húmoristast hafa bent á það að yrði fyrst vandræði ef þeir væru að keppa með sama liði.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×