Erlent

Hnífamaður skotinn til bana á lögreglustöð

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá vettvangi í morgun.
Frá vettvangi í morgun. Vísir/Epa
Karlmaður vopnaður hníf var skotinn til bana er hann gekk inn á lögreglustöð í Cornella suðvestan við spænsku borgina Barcelona í morgun.

Maðurinn er sagður hafa verið 29 ára gamall og af alsírskum uppruna. Þá er hann sagður hafa hrópað á arabísku þegar hann ruddist inn á lögreglustöðina á sjötta tímanum í morgun að staðartíma. Öryggisvörður skaut manninn til bana.

Árásarmaðurinn hafði búið á Spáni í nokkur ár og var til heimilis í grennd við Cornella.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×