Játar morð en segir eiginkonuna hafa drepið dæturnar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. ágúst 2018 06:31 Chris Watts og Shanann Watts ásamt dætrum sínum. Instagram
Faðir tveggja ungra stúlkna sem fundust látnar í olíutönkum í Denver í Bandaríkjunum eftir að hafa verið saknað dögum saman segir ólétta eiginkonu sína hafa myrt dætur þeirra eftir að hafa komist að því að faðirinn vildi skilnað. Hann segist hafa misst stjórn á sér eftir að hafa orðið vitni að morðunum og kyrkt konu sína. Þetta kemur fram í gögnum málsins sem vakið hefur óhug vestan hafs. AP greinir frá. Nokkrum dögum eftir að hafa hleypt lögreglu inn á heimili sitt til að þiggja aðstoð við leit að týndri fjölskyldu sinni sagðist faðirinn, Christopher Watts, ætla að segja rannsakendum sannleikann. Watts óskaði fyrst eftir því að fá að ræða við föður sinn. Í framhaldinu viðurkenndi hann að hafa drepið konu sína Shanann eftir að hafa orðið vitni að því að kona hans myrti aðrar dóttur þeirra. Þá hefði hún þegar drepið hina. Þær voru þriggja og fjögurra ára gamlar en auk þess var konan gengin 15 vikur með þriðja barn þeirra hjóna. Chris Watts, meintur morðingi fjölskyldu sinnar.CBS Reiknað er fastlega með því að hinn 33 ára gamli Watts verði ákærður fyrir þrjú morð, þar af tvö á einstaklingum undir tólf ára aldri. Auk þess fyrir að hafa drepið fóstur þeirra hjóna og misþyrmingu þriggja líka. Hann á að koma fyrir dóm í dag en dómari hefur neitað honum um að vera látinn laus gegn tryggingu meðan málið er til meðferðar. Saksóknarinn Michael Rourke vildi ekki svara spurningum fjölmiðla um málið í gær en sagði þrjá starfsmenn sína vinna hörðum höndum að rannsókn þess. Of snemmt væri að segja til um hvort hann fari fram á dauðarefsingu. Lögregla bankaði fyrst upp á á heimili Watts og fjölskyldu þann 13. ágúst eftir að tilkynning barst frá vini að Shanann hefði misst af læknisheimsókn. Þá svaraði hún hvorki símtölum né skilaboðum. Með leyfi Watts leitaði lögregla á heimili þeirra og fann síma Shanann á milli púða í sófa. Veski hennar og ferðataska voru á heimlinu en hún hafði verið í vinnuferð. Í framhaldinu hófst leit að konunni og dætrum þeirra. Lýsti Shanann því í viðtölum við sjónvarpsstöðvar hve mjög hann saknaði dætra sinna og vildi fá þær aftur heim. Sólarhring síðar sagðist hann ætla að segja „sannleikann“.
Bandaríkin Tengdar fréttir Líkin fundust í olíutanki Lík móður og tveggja dætra hennar fundust í olíutanki í Colorado. Faðirinn hefur verið handtekinn vegna málsins. 17. ágúst 2018 22:00 Handtekinn vegna hvarfs eiginkonu og dætra sinna Karlmaður í Colorado hefur verið handtekinn og er grunaður um að hafa myrt eiginkonu sína og dætur. 16. ágúst 2018 22:32 Mest lesið Yrði stærsta lýðheilsuslys Íslandssögunnar Innlent Segja Pútín vilja vopnahlé sem miðist við núverandi víglínur Erlent Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Innlent Svipað og frekar róleg haustlægð Innlent Rúta brann til kaldra kola við Sóltún Innlent Albert Guðmundsson verður ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Mikill harmleikur en skýrir farvegir Innlent Tamningakona sýknuð af bótakröfu vegna reiðslyss Innlent Sá sem át ekkert nema McDonalds í mánuð er fallinn frá Erlent Íslendingurinn sem slasaðist í háloftunum var á vegum Marels Innlent Fleiri fréttir Segja Pútín vilja vopnahlé sem miðist við núverandi víglínur Sá sem át ekkert nema McDonalds í mánuð er fallinn frá Ísrael eigi að láta af öllum hernaðaraðgerðum í Rafah „Þetta setti af stað dómínó-áhrif út um allan heim“ Óttast um afdrif ríflega hundrað eftir aurskriðu Allsherjarsigur gegn Hamas ólíklegur Segir yfirlýsingar um að FBI hafi mátt skjóta Trump stórhættulegar Segir samstöðu lykilinn að jarðgangagerð Færeyinga Fjórir látnir eftir að bygging hrundi á Majorku Munu þurfa að afplána í Kósovó Skoða að leyfa árásir í Rússlandi með bandarískum vopnum Segja fiskiolíu geta aukið líkurnar á gáttatifi og heilablóðfalli Kínverjar æfa innrás á Taívan Níu létust á framboðsfundi Fjölskyldur birta myndskeið af blóðugum gíslum Hamas-liða Annar umdeildur fáni hékk við annað hús dómara Höfða mál gegn hundrað lögregluþjónum vegna árásarinnar í Uvalde Boðar til kosninga í Bretlandi í sumar Saka Rússa um að skapa ótta á Eystrasalti Mikill eldur í höfuðstöðvum Novo Nordisk Lýsa hrikalegum aðstæðum í flugi Singapore Airlines: „Það var svo mikið öskrað“ Saka Ísraela um að misbeita lögum til þess að stöðva streymi frá Gasa Æðsti klerkurinn stýrði útför íranska forsetans Lætur líklega reyna aftur á þungunarrofsfrumvarpið Rússar sagðir hafa skotið geimvopni á sporbaug Ísraelar kalla sendiherrana heim frá Noregi, Írlandi og Spáni Búist við að Noregur viðurkenni Palestínu sem sjálfstætt ríki Sagðist opinn fyrir takmörkunum á getnaðarvarnir Hálfri milljón yrði gert að rýma kæmi til goss Kanna hvar Perry fékk ketamínið Sjá meira
Líkin fundust í olíutanki Lík móður og tveggja dætra hennar fundust í olíutanki í Colorado. Faðirinn hefur verið handtekinn vegna málsins. 17. ágúst 2018 22:00
Handtekinn vegna hvarfs eiginkonu og dætra sinna Karlmaður í Colorado hefur verið handtekinn og er grunaður um að hafa myrt eiginkonu sína og dætur. 16. ágúst 2018 22:32
Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Innlent
Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Innlent