Ítalski boltinn snýr aftur á Stöð 2 Sport Anton Ingi Leifsson skrifar 22. ágúst 2018 19:28 Íslendingar geta fylgst með Ronaldo í vetur. vísir/getty
Ljóst er að ítalski boltinn verður sýndur á sportstöðvum Stöðvar 2 í vetur en í tilkynningu sem send var á fjölmiðla í kvöld var greint frá þessu. Samningurinn gildir til næstu þriggja ára en í tilkynningu frá Sýn segir að þetta séu mikil gleðitíðindi fyrir unnendur ítalska boltans. Cristiano Ronaldo gekk í raðir Juventus í sumar og við Íslendingar eigum okkar mann í ítalska boltanum en Emil Hallfreðsson leikur með nýliðum Frosinone. Um helgina hefjast strax útsendingar frá ítalska boltanum en þar verða meðal annars Juventus og AC Milan í eldlínunni. Alla tilkynningu Sýn má sjá í heild sinni hér að neðan.Yfirlýsingin í heild sinni: Sýn hf. hefur náð samkomulagi um að leikir ítölsku 1. deildarinnar, Serie A, verði til sýningar á Stöð 2 Sport næstu þrjú árin. Þetta er mikið gleðiefni fyrir unnendur ítalska boltans, sem hefur verið meðal sterkustu knattspyrnudeilda Evrópu um árabil. Áhuginn á ítölsku deildinnni hefur verið sívaxandi og ríkir sérstaklega mikil eftirvænting fyrir komandi tímabili þar sem ein besti knattspyrnumaður heims, Cristiano Ronaldo, gekk í raðir Ítalíumeistara Juventus í sumar. Ítalska deildin er skipuð fjölda sterkum liðum sem eiga sér ríka sögu, bæði heima fyrir og í Evrópukeppnum, en margir af bestu leikmönnum Evrópu leika með liðum á Ítalíu. Stöð 2 Sport mun sýna frá fjölda leikja á komandi tímabili og gera öllu því helsta góð skil. Þess má geta að Emil Hallfreðsson, leikmaður íslenska landsliðsins, hefur spilað á Ítalíu í fjölda ára og gekk í sumar í raðir Frosinone. Stöð 2 Sport hefur leik í ítalska boltanum um helgina og sýnir beint frá fimm leikjum. Tvær stórviðureignir verða á dagskrá á laugardag er Ítalíumeistarar Juventus taka á móti Lazio og Napoli mætir AC Milan á heimavelli. Allar upplýsingar um beinar útsendingar verður hægt að nálgast á heimasíðu Stöðvar 2, stod2.is.Vísir er í eigu Sýnar.
Fótbolti Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Dagskráin í dag: Messan, meistarar Hauka, píla og NFL-veisla Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Skoraði og fékk gult fyrir að benda Juventus stigi frá toppnum Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Mané tryggði Senegal stig Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Þjálfari Þóris sá rautt í tapi fyrir Fabregas Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Tap hjá Tómasi í grannaslagnum og toppbaráttan harðnar Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Enn tapa Albert og félagar Andri Lucas frá í mánuð Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Svakalegur derby-dagur fyrir Tómas Bent og félaga Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Sjá meira