Fótbolti

Svava Rós og Sigríður Lára í undanúrslit norska bikarsins

Anton Ingi Leifsson skrifar
Svava er að gera það gott í Noregi.
Svava er að gera það gott í Noregi. vísir/getty
Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði eitt mark Roa er liðið vann 9-8 sigur á Arna-Bjørnar eftir vítaspyrnukeppni í norska bikarnum.

Svava Rós kom Roa yfir á 79. mínútu en Arna-Bjørnar jafnaði í uppbótartíma og því þurfti að framlengja. Svava Rós fór af velli í upphafi framlengarinnar.

Ekkert mark var skorað í framlengingunni og úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni. Þar hafði Roa betur eftir maraþon-vítaspyrnukeppni og lokatölur 9-8.

Sigríður Lára Garðarsdóttir kom inn á sem varamaður í uppbótartíma er Lilleström vann 4-1 sigur á Vålerenga í sömu keppni og því eru bæði Íslendingaliðin komin í undanúrslitin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×