Enski boltinn

Dele Alli breytir fagninu og nú myndar hann tvo hringi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Dele Alli bregður á leik.
Dele Alli bregður á leik. vísir/getty
Dele Alli heldur áfram að vekja athygli á samfélagsmiðlunum en fagn hans hafði vakið mikla athygli.

Dele Alli fagnaði með því að láta hendurnar fyrir andlitið á sér og mátti sjá sparkspekinga Messunnar reyna við fagnið í síðasta þætti.

Nú hefur Dele Alli ákveðið að reyna aðeins á aðdáendur sína og nú gerir hann fagnið fræga með tveimur hringjum.

Í dag mátti sjá Eric Dier reyna við þetta og þóttist taka ágætlega þótt að Alli hafi ekki verið alveg sáttur. Afraksturinn má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×