Innlent

Aldraðir bíða og bíða í Árborg eftir plássi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Aldraðir þurfa að bíða svo mánuðu skiptir eftir plássi í dagdvöl í sveitarfélaginu Árborg.
Aldraðir þurfa að bíða svo mánuðu skiptir eftir plássi í dagdvöl í sveitarfélaginu Árborg.
Aldraðir í Sveitarfélaginu Árborg mega búa við það að þurfa að bíða svo mánuðum skiptir eftir plássi í almennri dagdvöl eða í dagvöl fyrir heilabilaða.

Sveitarfélagið  rekur tvær dagdvalir,  önnur er almenn dagdvöl sem  heitir Árblik og er staðsett í Þjónustumiðstöð aldraðra að Grænumörk  á Selfossi þar sem leyfi eru fyrir ellefu manns en í september 2017 voru sótt um leyfi fyrir sex í viðbót.



Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir, félagsmálastjóri í Árborg.
Átta eru á biðlista í dag eftir að komast í Árblik.  „Við höfum ekki fengið svar við beiðni okkar frá ríkinu en ég hef ítrekað beiðnina.  Verið er að byggja nýja dagdvöl sem verður næstum því helmingi stærri að flatarmáli og getum við því vel bætt við okkur“, segir Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir, félagsmálastjóri í Árborg.

Í dagdvölinni Vinaminni á Selfossi erum leyfi fyrir tíu manns,  en það er sérhæfð dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóma.  Í febrúar var sótt um fjölgun leyfa fyrir þrjá til fimm í viðbót en í dag eru þrír á biðlista eftir því að komast inn á Vinaminni.

„Dagdvalarúrræði eru mikilvæg og þarft úrræði fyrir þá sem það nýta sem og aðstandendur þeirra.  Í dagdvölunum fer fram félagsleg virkni og eftirlit er með heilsu notenda.  Ráðgjöf og leiðbeiningar eru veittar til notenda og aðstandenda. Ég harma það að ríkið horfi fram á of litla fjölgun rýma miðað við núverandi stöðu og hvað þá í ljósi mikillar fjölgunar eldri borgara á næstu árum.  Dagdvalarrýmin eru samvinnuverkefni ríkis og sveitarfélaga þar sem að ríkið leggur til daggjöld og húsnæðisgjald en sveitarfélögin leggja bæði til húsnæði og fé til rekstursins“, bætir Guðlaug Jóna við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×