Erlent

Selur meydóminn til að gera móður sína stolta

Sylvía Hall skrifar
Fyrirsætan er með rúmlega 38 þúsund fylgjendur á Instagram.
Fyrirsætan er með rúmlega 38 þúsund fylgjendur á Instagram. Instagram/@mahbuba_mammadzada
Mahbuba Mammadzada, 23 ára fyrirsæta frá Azerbaijan, hefur ákveðið að selja meydóminn sinn til hæstbjóðanda. Ástæðuna segir hún vera að hún vilji gera móður sína stolta.

Fyrirsætan nýtur mikillar velgengni í heimalandinu en er nú búsett í Tyrklandi. Hún segir móður sína hafa gert allt til þess að styðja við bakið á henni og nú vilji hún launa greiðann:

„Mamma mín gerði allt fyrir mig, nú er komið að mér. Ég vil að hún sé stolt af mér.“

 
A post shared by BabeDogs(@mahbuba_mammadzada) on Aug 12, 2018 at 8:20am PDT



Hún segist vilja nota peningana til þess að kaupa hús fyrir móður sína og fjármagna nám sitt erlendis. Hún bindur vonir við að fá allt að hundrað þúsund evrur fyrir meydóminn, eða tæplega 12,5 milljónir króna. 

Fyrirsætan hefur nú þegar skilað inn læknisvottorði og birt myndband af sér á síðunni þar sem salan fer fram, og notast hún við nafnið Maria þar. Þá mun hún aðeins fá 80% af gróðanum, þar sem milligönguaðilinn Cinderella Escorts gerir kröfu um að 20% af sölunni fari til fyrirtækisins.


Tengdar fréttir

Seldi meydóminn á 100 milljónir

Brasilísk stúlka hefur selt meydóm sinn á netuppboði fyrir tæpar 100 milljónir íslenskra króna. Alls bárust 15 boð í hina tuttugu ára gömlu Catarina Migliorini en það var japanskur karlmaður sem stóð uppi sem sigurvegari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×