Enski boltinn

Benitez: Þetta var ekki víti

Dagur Lárusson skrifar
Rafa Benitez
Rafa Benitez vísir/getty
Rafa Benitez, stjóri Newcastle, var ekki sáttur eftir tap sinna manna gegn Chelsea í dag en hann telur dómaranna ekki hafa staðið sig.

 

Benitez var sérstaklega óánægður með ákvörðun dómarans að veita Chelsea vítaspyrnu þegar Marcos Alonso féll í vítateig Newcastle.

 

 „Við vildum halda okkur í leiknum og reyna að nýta tækifærin okkar. Við vorum svo nálægt því en síðan fengu þeir víti sem átti hreinlega ekki að vera víti.“

 

„Við vissum að ef við myndum spila opið gegn þeim að þá gætu þeir spilað í gegnum okkur með þau gæði sem þeir eru með í liðinu sínu.“

 

„Við þurfum að vera þéttir og við vorum það, og við vorum að vonast til þess að láta þá gera mistök og nýta okkur þau tækifæri en síðan fengu þeir þessa vítaspyrnu og það breytti öllu.“  

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×