Innlent

Sumarbústaður við Þingvallavatn alelda

Birgir Olgeirsson skrifar
Brunavarnir Árnessýslu
Brunavarnir Árnessýslu Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Sumarbústaður við Þingvallavatn er alelda og eru slökkviliðsmenn frá Selfossi og Laugavatni á leið á staðinn. Samkvæmt upplýsingum frá brunavörnum Árnessýslu er eldur kominn í gróður í grennd við sumarbústaðinn, sem er í Grafningi, en slökkviliðið telur sig ráða við þann eld sem sakir standa.

Sjúkraflutningamenn og lögreglumenn eru á vettvangi en ekki er vitað um slys á fólki.

Verið er að senda þrjá öfluga dælubíla á vettvang sem og slökkvikerrur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×