Erlent

Launin hundraðfölduðust fyrir mistök

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Þeim fjölgaði hratt, áströlsku dölunum á bankareikningi mannsins.
Þeim fjölgaði hratt, áströlsku dölunum á bankareikningi mannsins. vísir/getty
Ástrali fékk óvænt ríflega launahækkun á dögunum. Það þætti alla jafna ekki í frásögur færandi en í tilfelli þessa einstaklings var þó ekki dugnaður og elja sem leiddi til launahækkunarinnar - heldur komma á vitlausum stað.

Á vef breska ríkisútvarpsins segir að Ástralinn hafi átt að fá greitt A$4,921.76, eða um 370 þúsund íslenskar krónur í mánaðarlaun. Mistök hjá bókhöldurum héraðsstjórnarinnar í norðurhluta landsins urðu þó til þess að einstaklingurinn fékk greiddar A$492,176 - sem nemur 37 milljónum króna. Hann fékk því 100-falt hærri laun en til stóð.

Endurskoðandi héraðsins kom auga á mistökin, sem hann skrifar á mannleg mistök. Hinn nýríki Ástrali er jafnframt sagður hafa staðist freistinguna og ákveðið að greiða upphæðina til baka. Hann gerði það þó um 4 vikum eftir að honum barst launagreiðslan, en það er sagt tilkomið vegna þess að einstaklingurinn býr á afskekktum stað. Hann hafi því þurft að gera sér ferð í banka til að hægt væri að framkvæma hina háu endurgreiðslu.

Héraðsstjórnin er alls sögð hafa ofgreidd laun 743 sinnum á tímabilinu júlí 2017 fram í janúar á þessu ári. Þar af eigi eftir að endurgreiða næstum 80 milljónir króna. Þrátt fyrir að það kunni að hljóma mikið nemur fjöldinn þó ekki nema 0,2 prósentum allra launagreiðsla sem framkvæmdar eru í héraðinu á ári hverju.

Unnið er að því að endurbæta verkferla hjá bókurum héraðsins til að fækka slíkum ofgreiðslum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×