Fótbolti

Fótboltaleikurinn þar sem þú mátt ekki hlaupa

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eldri fótboltamenn á ferðinni.
Eldri fótboltamenn á ferðinni. Vísir/Getty
Heilsufótbolti er nýjasta útgáfan af fótbolta en þessi íþrótt hefur oft verið nefnd göngufótbolti og ætti að henta öllum.  

Knattspyrnusamband Íslands vekur athygli á íþróttinni á heimasíðu sinni í dag og segir að jeilsufótbolti ryðji sér nú til rúms í heiminum.

Í frétt KSÍ segir frá því að nýverið hittist hópur fólks á Þróttaravellinum í Laugardal í þeim tilgangi að spila heilsufótbolta eða það sem stundum hefur verið kallað göngufótbolti.

Ástæðan fyrir því að heimavöllur Þróttar var valinn er sú að reglulega hittist þar hópur og spilar fótbolta þar sem grunnreglan er sú að óheimilt er að hlaupa.

Heilsubolti/göngubolti hefur verið að ryðja sér til rúms í Evrópu undanfarin ár. Fleiri og fleiri knattspyrnusambönd hafa lagt áherslu á þessa tegund af fótbolta vegna þess að hún gerir fólki kleift að stunda knattspyrnu fram á efri árin.

Fyrir utan félagslega þáttinn sem er vitanlega mikilvægur í þessu eins og annarri heilsurækt. Heilsubolti hentar öllum, ungum sem öldnum, körlum sem konum.

Sunnudaginn 23. september er stefnt að því að halda stærri kynningu á heilsubolta og ætlar KSÍ að kynna sér það nánar síðar.

Knattspyrnusamband Íslands segir einnig frá reglunum í í heilsufótbolta (göngufótbolta) en þær má finna hér fyrir neðan.

1. Bannað er að hlaupa. Leikmaður verður að hafa annan fótinn á jörðinni.

2. Það er engin rangstaða.

3. Sóknarmenn mega ekki fara innfyrir vítateig (aukaspyrna).

4. Varnarmenn mega ekki fara innfyrir eigin vítateig (vítaspyrna).

5. Markvörður má ekki fara útfyrir vítateig (vítaspyrna).

6. Rennitæklingar eru með öllu bannaðar.

7. Allar aukaspyrnur eru óbeinar.

8. Markvörður verður að spyrna frá marki eða kasta með "undir arm" kasti.

9. Lið mega vera kynja og -aldursblönduð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×