Fótbolti

Rúnar Már lagði upp tvö í endurkomu Grasshopper

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Rúnar Már Sigurjónsson
Rúnar Már Sigurjónsson vísir/getty
Rúnar Már Sigurjónsson lagði upp jöfnunarmark í uppbótartíma þegar Grasshopper sótti Lugano heim í svissnesku úrvalsdeildinni.

Rúnar Már byrjaði leikinn á miðjunni í liði Grasshopper.

Heimamenn í Lugano komust tveimur mörkum yfir með mörkum frá Assan Ceesay sitt hvoru megin við hálfleikinn og virtust ætla að sigla nokkuð þægilegum sigri.

Rúnar Már var hins vegar ekki á því. Hann lagði upp fyrsta mark Grasshopper fyrir Nathan á 75. mínútu og Aleksandar Cvetkovic skoraði í uppbótartíma eftir sendingu frá Rúnari.

Stigið var það fyrsta í fjórum leikjum Grasshopper í deildinni til þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×