Fótbolti

Pique hættur með spænska landsliðinu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Pique klæddist spænsku treyjunni í síðasta skipti á HM í Rússlandi
Pique klæddist spænsku treyjunni í síðasta skipti á HM í Rússlandi Vísir/Getty
Gerard Pique, varnarmaður Barcelona, er hættur að leika með spænska landsliðinu. Hann tilkynnti þetta í dag.

Pique er 31 árs gamall og hefur spilað 102 landsleiki fyrir Spán. Hann varð heimsmeistari með Spánverjum í Suður-Afríku árið 2010 og Evrópumeistari árið 2012.

Hann sagði ákvörðunina vera „löngu ákveðna og vel úthugsaða.“

Af þeim 102 leikjum sem Pique spilaði vann Spánn 73 þeirra sem er rúmlega 70 prósent sigurhlutfall.



 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×