Fótbolti

Glódís skoraði í Íslendingaslag

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Glódís í leik með íslenska landsliðinu
Glódís í leik með íslenska landsliðinu Vísir/Getty
Glódís Perla Viggósdóttir skoraði í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Rosengard vann öruggan sigur á LB07.

Iva Landeka og Simone Boye Sorensen skoruðu sitt hvort markið í fyrri hálfleik og komu heimakonum í Rosengard í 2-0 forystu áður en gengið var til búningsherbergja.

Íslenski miðvörðurinn innsyglaði svo sigurinn undir lok leiksins.

Glódís spilaði allan leikinn í liði Rosengard og það gerðu Rakel Hönnudóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir líka í liði LB 07.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×