Enski boltinn

Jóhann Berg og félagar áfram eftir framlengingu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jóhann Berg á blaðamannafundi fyrir leikinn.
Jóhann Berg á blaðamannafundi fyrir leikinn. vísir/getty
Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley eru komnir áfram í næstu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar eftir 1-0 sigur á Instanbul Basaksehir.

Fyrri leik liðanna í Tyrklandi lauk með markalausu jafntefli og ekkert mark var skorað í venjulegum leiktíma á Turf Moor í kvöld.

Eina mark leiksins skoraði varamaðurinn Jack Cork á sjöundu mínútu uppbótartíma og lokatölur 1-0. Jóhann Berg kom inn á sem varamaður á 58. mínútu.

Í næstu umferð mætir Burnley gríska stórveldinu Olympiakos en með sigri í því einvígi er liðið komið í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Rosenborg átti ekki í neinum vandræðum með Cork en lokatölur urðu 3-0 í kvöld og samanlagt 5-0. Matthías Vilhjálmsson var ekki í leikmannahóp Rosenborg sem mætir Shkendija frá Makedóníu í næstu umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×