Fótbolti

Sonur Ronaldinho búinn að semja við Cruzeiro

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ronaldinho.
Ronaldinho. vísir/getty
Hinn 13 ára gamli Joao Mendes hefur samið við brasilíska úrvalsdeildarliðið Cruzeiro eftir að hafa dvalið hjá liðinu á reynslu undanfarnar vikur. 

Það þætti kannski ekki frásögum færandi nema fyrir þá staðreynd að þessi efnilegi knattspyrnumaður er sonur brasilísku goðsagnarinnar Ronaldinho sem gerði garðinn frægan með PSG, Barcelona og AC Milan fyrir ekki svo mörgum árum síðan.

Ronaldinho var valinn besti leikmaður heims árin 2005 og 2006 og er af mörgum talinn hæfileikaríkasti knattspyrnumaður sögunnar þó hann hafi ekki verið mjög lengi á hátindi ferils síns.

Samkvæmt brasilíska fjölmiðlinum Globoesporte reyndi Mendes að fela þá staðreynd að hann væri sonur Ronaldinho á meðan hann var á reynslu hjá Cruzeiro þar sem drengurinn vildi alls ekki komast áfram á orðsporinu.

Ronaldinho eignaðist Joao Mendes með brasilíska dansaranum Janaina Natielle Mendes þegar hann var á hátindi ferilsins hjá Barcelona árið 2005 og sér hún um öll samningamál sonarins.

Ronaldinho yngri sáttur með samninginn.Globoesporte



Fleiri fréttir

Sjá meira


×