Fótbolti

Neymar og Mbappe sáu um Guingamp

Anton Ingi Leifsson skrifar
Neymar skorar af vítapunktinum.
Neymar skorar af vítapunktinum. vísir/getty
Neymar og Kylian Mbappe voru hetjur PSG er liðið vann 3-1 sigur á Guingamp í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. PSG lenti undir en komu til baka.

Nolan Roux kom Guingamp yfir á tuttugustu mínútu og þannig stóðu leikar allt þangað til á 53. mínútu er Neymar skoraði úr vítaspyrnu.

Þegar átta mínútur voru eftir skoraði Kylian Mbappe, ein skærasta stjarna HM í sumar og kom PSG í 2-1. Mbappe var ekki hættur því hann skoraði annað mark sitt og þriðja mark PSG í uppbótartíma.

PSG er með sex stig eftir tvo leiki og ekkert óvænt þar á ferðinni. Guingamp er með núll stig eftir tvo leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×