Fótbolti

Messi skoraði mark númer sex þúsund í sigri á Alaves

Anton Ingi Leifsson skrifar
Messi fagnar í kvöld.
Messi fagnar í kvöld. vísir/getty
Barcelona er með þrjú stig eftir fyrstu umferðina í spænsku úrvalsdeildinni en Börsungar unnu 3-0 sigur á Alaves á heimavelli í kvöld.

Það tók sinn tíma að brjóta niður þéttan varnarmúr Alaves og fyrsta markið kom ekki fyrr en á 64. mínútu er Lionel Messi skoraði úr aukaspyrnu.

Messi setti þá boltann undir vegg Alaves sem hoppaði en þetta var sex þúsundasta mark Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni. Messi skoraði einnig mark númer fimm þúsund.

Philippe Coutinho opnaði markareikning sinn fyrir Barcelona þetta tímabilið með öðru marki Barcelona sjö mínútum fyrir leikslok.

Messi bætti svo við öðru marki sínu og þriðja mark Börsunga í uppbótartíma og nokkuð þægilegur sigur meistaranna í fyrstu umferðini.

Real spilar gegn Getafe annað kvöld og verður leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×