Innlent

Missti pallhýsið af þegar hann ók undir Ölfusárbrú

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá vettvangi óhappsins.
Frá vettvangi óhappsins. Aðsend mynd
Umferðaróhapp varð á Selfossi á fimmta tímanum í dag þegar pallhýsi rakst upp undir Ölfusárbrú. Samkvæmt merkingu á brúnni komast farartæki sem eru yfir þrír metrar á hæð ekki undir brúna.

Ekki hafa fengist upplýsingar  um óhappið frá lögreglu og því ekki vitað um slys á fólki að svo stöddu.

Fréttin verður uppfærð þegar nánari upplýsingar liggja fyrir. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×