Íslenski boltinn

Í fallbaráttu en losa sig við erlendu leikmennina

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hanna er hún skrifaði undir samninginn við FH.
Hanna er hún skrifaði undir samninginn við FH. vísir/fh
FH hefur losað sig við þær Tatiana Saunders og Hanna María Barker en þær hafa báðar verið lánaðar í Inkasso-deildina.

Þær gengu báðar í raðir FH fyrir tímabilið en FH hefur undanfarin ár fengið virkilega góða erlenda leikmenn sem hafa spilað stór hlutverk í liðinu.

Báðar hafa þær ekki staðið undir væntingum en Taitana er markvörður sem hefur misst mikið úr vegna meiðsla. Hanna er svo vængmaður sem hefur skorað eitt mark í þrettán leikjum.

FH er á botni Pepsi-deildarinnar með sex stig eins og er en liðið er þó ekki nema þremur stigum frá öruggu sæti er tíu leikir eru eftir af mótinu.

ÍR fær því vænan liðsstyrk en ÍR er einnig í botnbaráttu í Inkasso-deildinni. Þær eru í niunda sæti, með jafn mörg stig og Afturelding/Fram sem er sæti ofar, en slakari markahlutfall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×