Fótbolti

Sjáðu frábært skallamark Flóka í fyrsta leiknum í Svíþjóð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Flóki er hann skrifaði undir samninginn.
Flóki er hann skrifaði undir samninginn. vísir/heimasíða brommapojkarna
Kristján Flóki Finnbogason skoraði sitt fyrsta mark fyrir Brommapojkarna í gær í 2-1 sigri liðsins á Dalkurd.

Flóki var lánaður til Brommapojkarna út tímabilið frá Start í Noregi en Brommapojkarna er nýliði í sænsku úrvalsdeildinni.

Hafnfirðingurinn var ekki lengi að stimpla sig inn í gær en eftir að hafa verið skipt inn á 62. mínútu, þakkaði hann traustið sex mínútum síðar og jafnaði metin í 1-1.

Sigurmarkið kom svo tíu mínútum fyrir leikslok en Kristján Flóki var einnig nálægt því að skora það eins og sést í myndbandinu hér að neðan.

Bæði mörk Brommapojkarna má sjá hér að neðan, þar á meðal glæsilegan skalla Flóka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×