Íslenski boltinn

Leik Grindavíkur og Víkings frestað

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Úr fyrri leik liðanna í Víkinni
Úr fyrri leik liðanna í Víkinni vísir/daníel
Leik Grindavíkur og Víkings í Pepsi deild karla sem átti að fara fram í kvöld hefur verið frestað. Leikurinn mun í staðinn fara fram annað kvöld.

Ástæða frestunarinnar er slæmt veður, en það spáir 12-15 metrum á sekúndu í Grindavík í kvöld. Þar sem mögulegt var að færa leikinn aftur um einn dag var sú ákvörðun tekin.

Einn leikur er á dagskrá í Pepsi deildinni í kvöld þar sem Breiðablik tekur á móti KR.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×