Íslenski boltinn

Frábær sókn FH: Fjölnir kom ekki við boltann í 48 sekúndur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
S2 Sport
FH vann Fjölni 1-0 í Pepsi deild karla í gærkvöld. Mark FH-inga kom á fyrstu mínútunni og komust Fjölnismenn ekki í boltann frá því að FH tók miðju og þar til hann lá í netinu.

Pepsimörkin tóku saman allar snertingar FH í sókninni í skemmtilegu myndbroti sem sjá má hér með fréttinni.

„Við sjáum engan Fjölnismann gera árás á manninn, koma í manninn, snerta manninn,“ sagði Þorvaldur Örlygsson.

„Þetta var leikur án snertingar.“

Sigurinn kom FH upp í fimmta sæti deildarinnar en skildi Fjölni eftir aðeins einu stigi frá fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×