Lífið

Toto þakkaði Weezer fyrir með sinni útgáfu af Hash pipe og ástæðan var einföld

Birgir Olgeirsson skrifar
Sögðust Toto-menn hafa reykt hass mjög lengi, voru í raun byrjaðir á því áður en meðlimir Weezer voru fæddir.
Sögðust Toto-menn hafa reykt hass mjög lengi, voru í raun byrjaðir á því áður en meðlimir Weezer voru fæddir. Vísir/Getty
Bandaríska hljómsveitin Weezer ákvað fyrr í ár að verða við bón aðdáanda síns sem hrinti af stað herferð með það að markmiði að fá bandið til að gera ábreiðu af laginu Africa með Toto.

Weezer ákvað að stríða aðdáendum sínum eilítið með því að gefa fyrst út ábreiðu af Toto-laginu Rosanna en fylgdi henni eftir skömmu síðar með ábreiðu af Africa sem varð um leið vinsælasta smáskífa sveitarinnar í áratug.

Meðlimir hljómsveitarinnar Toto voru svo hrifnir af uppátækinu að þeir ákváðu að gera ábreiðu af Weezer lagi. Fyrir valinu varð lagið Hash Pipe með Weezer og var ástæðan nokkuð einföld.

Sögðust Toto-menn hafa reykt hass mjög lengi, voru í raun byrjaðir á því áður en meðlimir Weezer voru fæddir. Þetta sagði Steve Lukather á tónleikum Toto áður en þeir fluttu sína útgáfu af Hash Pipe.

Hljóðvers útgáfa Toto af Hash Pipe fer þó ekki í spilun fyrr en tíunda ágúst næstkomandi en þangað til er hægt að horfa á þetta myndband af sveitinni flytja lagið á tónleikum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×