Innlent

Kveiktu í gervigrasi ÍR

Gissur Sigurðsson skrifar
Íþróttafélag Reykjavíkur er með aðsetur í Breiðholti.
Íþróttafélag Reykjavíkur er með aðsetur í Breiðholti. Vísir/VILHELM
Kveikt var í gervigrasrúllum á íþróttasvæði ÍR í Breiðholti í gærkvöldi. Kallað var á slökkvilið, en snarráð vitni að eldinum höfðu slökkt hann áður en liðið kom á vettvang.

Slökkviliðsmenn gengu úr skugga um að engar glæður leyndust í rúllunum, sem skemmdust ekki mikið. Ekki er vitað hver kveikti í rúllunum.

Þá kallaði eldvarnakerfi á hóteli út slökkviliðið á Akureyri. Þar reyndist enginn eldur, en bilun hafi orðið í kerfinu sjálfu að sögn varðstjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×