Lífið

Prinsinn fimm ára í dag

Sylvía Hall skrifar
Georg litli vekur mikla lukku hvert sem hann fer.
Georg litli vekur mikla lukku hvert sem hann fer. Vísir/Getty
Georg prins fagnar fimm ára afmæli sínu í dag og birti konungshöllin mynd af drengnum í Instagram í tilefni dagsins.

Prinsinn er fyrsta barn þeirra hjóna og fæddist þann 22. júlí 2013. Fæðing hans vakti athygli um allan heim og var beðið með mikilli eftirvæntingu eftir fyrsta barni Vilhjálms prins og Katrínar hertogaynju.

Hann er sá þriðji í röðinni sem erfingi bresku krúnunnar, en það er á eftir föður sínum og afa. Á eftir koma systkini hans, þau Karlotta og Lúðvík.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×