Fótbolti

Guðlaugur Victor í liði umferðarinnar

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Guðlaugur Victor Pálsson hefur borið fyrirliðaband Zurich
Guðlaugur Victor Pálsson hefur borið fyrirliðaband Zurich getty
Guðlaugur Victor Pálsson var valinn maður leiksins í sigri Zurich á Thun í fyrstu umferð svissnesku úrvalsdeildarinnar í fótbolta um helgina. Frammistaða hans í leiknum skilaði honum í lið umferðarinnar.

Svissneski miðillinn Blick valdi Guðlaug Victor í lið umferðarinnar hjá sér en hann bjargaði meðal annars á línu í 2-1 sigrinum.

Guðlaugur Victor hefur verið í herbúðum svissneska liðsins síðan á síðasta ári.

Næsti leikur Guðlaugs Victors er Íslendingaslagur gegn Rúnari Má Sigurjónssyni og félögum í Grasshopper.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×