Íslenski boltinn

Breiðablik á toppinn og Selfoss með mikilvægan sigur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Berglind Björg er funheit. Hún skoraði sitt ellefta mark í deildinni í kvöld.
Berglind Björg er funheit. Hún skoraði sitt ellefta mark í deildinni í kvöld. vísir/anton
Breiðablik vann sinn fjórða sigur í röð í Pepsi-deild kvenna er liðið vann 2-0 sigur á Grindavík. Á sama tíma vann Selfoss 1-0 sigur á KR.

Agla María Albertsdóttir kom Breiðablik yfir á 28. mínútu og Berglind Björg Þorvalsdóttir tvöfaldaði forystuna á 89. mínútu með sínu ellefta marki.

Breiðablik er á toppi deildarinnar með 30 stig eftir ellefu leiki en liðið hefur unnið tíu af ellefu leikjum sínum í sumar og er með eins stigs forskot á Þór/KA.

Grindavík er hins vegar í ögn meiri vandræðum. Stelpurnar úr Grindavík eru þremur stigum frá fallsæti og ljóst að það er hörð barátta framundan á botni og á toppi.

Eina markið í botnbaráttuslag KR og Selfoss í Vesturbænum kom úr vítaspyrnu. Magdalena Anna Reimus skoraði úr víti fyrir Selfoss á 44. mínútu og tryggði þeim 1-0 sigur.

Selfoss er komið með tólf stig og er í sjöunda sætinu. KR er í fallsæti með sex stig, þremur frá öruggu sæti.

Úrslit og markaskorar eru fengnir frá úrslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×