Viðskipti erlent

Samsung segjast hafa þróað sveigjanlegan og óbrjótandi skjá

Samúel Karl Ólason skrifar
Sveigjanlegt plast er sett yfir skjáinn og mun það líta út eins og hann sé úr gleri.
Sveigjanlegt plast er sett yfir skjáinn og mun það líta út eins og hann sé úr gleri. Vísir/Samsung
Forsvarsmenn tæknifyrirtækisins Samsung frá Suður-Kóreu segjast hafa þróað sveigjanlegan og óbrjótandi OLED skjá. Enn fremur segja þeir að skjárinn sé tilbúinn til notkunar og hægt sé að koma honum fyrir í nýjum símum. Þetta tilkynnti fyrirtækið í dag.



Fyrirtækið segir skjáina hafa farið í gegnum þolpróf þar sem hafi verið sleppt úr 1,4 metra hæð, 26 sinnum, án þess að hafa orðið fyrir nokkrum skemmdum. Þá var skjánum einnig sleppt úr 1,8 metra hæð án þess að skemmast.

Skjárinn verður ekki einungis notaður í síma, en í tilkynningu Samsung, segir að hann gæti notast í bíla, samskiptatæki hönnuð fyrir hernað, leikjatölvur og margt fleira.

Greinendur hafa á undanförnum vikum rætt um að stutt sé að Samsung kynni síma sem hægt sé að brjóta saman og styður yfirlýsing fyrirtækisins við þann orðróm. Cnet segir Samsung í samkeppni við Huawei um að gefa út slíkan síma og að DJ Koh, yfirmaður símadeildar Samsung, hafi meðal annars sagt að slíkur sími gæti jafnvel komið út á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×