Lífið

Með efni úr eigin smiðjum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Valgeir og Vigdís Vala bregða á leik. Þau ætla að syngja saman í Strandarkirkju í Selvogi á sunnudaginn.
Valgeir og Vigdís Vala bregða á leik. Þau ætla að syngja saman í Strandarkirkju í Selvogi á sunnudaginn. Ásta
„Ég man vel eftir því þegar pabbi samdi þetta lag. Ég var níu ára þá, og var á sólpalli við sumarhús í Grundarfirði, rétt utan við bæinn,“ segir Vigdís Vala Valgeirsdóttir um lagið Í góðu veðri á Grundarfirði sem hún og faðir hennar, Valgeir Guðjónsson, sungu nýlega saman í hljóðveri.

Lagið er spilað oft í útvarpi Grundfirðinga þessa viku, á rásinni FM 103,5, því þar stendur yfir árleg bæjarhátíð.  Vigdís Vala segir þau feðgin einmitt vera að syngja saman þegar ég hringi í hana en er ekkert fúl yfir að vera trufluð.

„Þetta er allt í lagi, við erum bara heima í stofu hér á Bakkanum,“ segir hún og upplýsir að þau séu að æfa fyrir tónleika í Strandarkirkju á sunnudaginn sem hefjist klukkan 14 og nefnist Sunnan yfir sæinn breiða. Þar ætli þau að flytja saman þekkt lög og minna þekkt úr eigin smiðjum.

Vigdís Vala er 25 ára og er á doktorsstigi í rannsóknasálfræði við HÍ. Hún kveðst ung hafa byrjað að semja lög og ljóð. „Ég er samt búin að vera í smá pásu frá músíkinni eftir að ég byrjaði í sálfræðinni, en nú er ég farin að blanda þessu tvennu svolítið saman. Það er mjög gaman,“ segir Vala sem var með sitt eigið band þegar hún var um tvítugt.  

„Við vorum bara á búllum bæjarins og ætluðum að taka eitthvað upp saman, en þá byrjaði ég í sálfræðinni, gítarleikarinn í verkfræði og trommarinn fór til útlanda svo ekkert varð af því. Síðan hef ég aðallega fókuserað á skólann en aðeins verið að troða upp á börum og aðstoða aðra, til dæmis í bakröddum á nýju Stuðmannaplötunni og í Grundarfjarðarlaginu hans pabba.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×