Innlent

Flýta endurskoðun sauðfjársamnings

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Viðræðurnar fara fram á grundvelli tillagna sem samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga hefur skilað en ráðherra beindi þeim tilmælum til hópsins fyrr á þessu ári að setja í forgang tillögur til að bregðast við erfiðleikum í sauðfjárrækt.
Viðræðurnar fara fram á grundvelli tillagna sem samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga hefur skilað en ráðherra beindi þeim tilmælum til hópsins fyrr á þessu ári að setja í forgang tillögur til að bregðast við erfiðleikum í sauðfjárrækt. fréttablaðið/stefán
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur í samráði við Bændasamtök Íslands ákveðið að flýta viðræðum um endurskoðun samnings um starfsskilyrði sauðfjárræktar.

Verða skipaðar samninganefndir á vegum ríkisins og bænda á næstu dögum en þetta kemur fram í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu.

Þar segir að viðræðurnar muni fara fram á grundvelli tillagna sem samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga hefur skilað en ráðherra beindi þeim tilmælum til hópsins fyrr á þessu ári að setja í forgang tillögur til að bregðast við erfiðleikum í sauðfjárrækt.

Bráðaaðgerðir sem starfshópurinn leggur til eru annars vegar aðgerðir sem stuðla að jafnvægi milli framleiðslu og sölu haustið 2019 og hins vegar aðgerðir sem stuðla að hagræðingu og stöðugleika í greininni. Tillögurnar má lesa hér.

Yfirlýsing frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Bændasamtökum Íslands:

Samkvæmt samningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðar skal endurskoðun búvörusamninga fara fram tvisvar á samningstímanum, annars vegar árið 2019 og hins vegar árið 2023. Í ákvæði til bráðabirgða í búvörulögum nr. 99/1993 kemur fram að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skuli skipa samráðshóp um endurskoðun búvörusamninga þar sem tryggð er aðkoma afurðastöðva, atvinnulífs, bænda, launþega og neytenda.

 

Í samræmi við framangreint  skipaði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í febrúar sl. samráðshóp um endurskoðun búvörusamninga. Beindi ráðherra því til samráðshópsins að setja í forgang tillögur til að bregðast við erfiðleikum í sauðfjárrækt. Samráðshópurinn skilaði tillögum og framvinduskýrslu til ráðherra 3. júlí sl. Samráðshópurinn leggur fram í tillögum sínum ákveðnar hugmyndir til að bregðast við erfiðleikum sauðfjárbænda, bæði bráðaaðgerðir og aðgerðir sem stuðla að hagræðingu og stöðugleika í sauðfjárrækt.

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í samráði við Bændasamtök Íslands ákveðið að flýta viðræðum um endurskoðun samnings um starfsskilyrði sauðfjárræktar og verða skipaðar samninganefndir á vegum ríkisins og bænda á næstu dögum. Í kjölfarið hefjast viðræður um endurskoðun samningsins í stað þess að fara fram árið 2019 líkt og áður var ráðgert. Viðræður aðila munu fara fram á grunni þeirra tillagna sem samráðshópurinn hefur skilað til ráðherra. Þá munu Bændasamtök Íslands í komandi viðræðum leggja áherslu á ályktanir Búnaðarþings og tillögur aðalfundar Landssamtaka sauðfjárbænda. Að sama skapi munu stjórnvöld m.a. leggja áherslu á þær aðgerðir sem kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Stefnt er að því að ljúka heildarendurskoðun samningsins síðar á þessu ári.


Tengdar fréttir

Fólk hleypur ekkert í burtu að gamni sínu

Guðrún Stefánsdóttir í Hlíðarendakoti hefur sinnt sauðfjárbúskap í þrjá áratugi og ekki dregið af sér, hvorki heima fyrir né í félagsstarfi fyrir bændur. Nú kveðst hún ekki lengur geta búið við þau kjör sem henni sé gert að lifa við og vandar sláturleyfishöfum ekki kveðjurnar.

Minni framleiðsla og fækkun afurðastöðva meðal tillagna

Fækkun afurðastöðva og minnkun kindakjötsframleiðslu eru meðal hagræðingarleiða sem nefndar eru í ­úttekt KPMG. Arðsemi sauðfjárbænda talin óásættanleg. Formaður Landssambands sauðfjárbænda segir að hagræða þurfi þar sem það sé hægt. Mikilvægt sé að hugsa málið út frá hagsmunum bænda og neytenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×