Innlent

Frumfluttu nýtt þjóðlag sem útskýrir hvers vegna Katla gaus 1918

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Bæði mannfólk, álfar og tröll koma við sögu í nýju þjóðlagi sem frumflutt var í dag. Lagið er samið af nokkrum krökkum sem að undanförnu hafa sótt söngsmiðju í tilefni af hundrað ára afmæli fullveldis á Íslandi. Hópur ungra tónlistarmanna var að hita upp fyrir Sönghátíð í Hafnarborg þegar fréttastofa leit við síðdegis í dag.

Krakkarnir hafa undanfarna daga sótt söngsmiðju og notið leiðsagnar reyndra tónlistarmanna, þeirra Ingibjargar Fríðu Helgadóttur og Sigurðar Inga Einarssonar. „Við vorum að vinna bæði með þjóðlög sem eru til, íslensk og erlend, svo erum við með þjóðsögur, sögðum þeim nýja og nýja þjóðsögu á hverjum degi og bjuggum svo til einhverja skemmtilega dagskrá í kringum það,“ segir Ingibjörg Fríða.

Að lokum samdi hópurinn svo sína eigin þjóðsögu og þjóðlag. „Það er spurning hvort þessi saga og þetta lag lifi eftir 300 ár,“ segir Siggi.

Í þjóðlaginu sem krakkarnir sömdu og leit dagsins ljóss í dag koma ýmsar vættir við sögu. Sagan gerist árið 1918 og í sögunni er leitast við að útskýra hvers vegna eldgos varð í Kötlu. Samkvæmt sögunni verður jarðskjálfti þegar tröll spila saman tónlist en þegar álfar spila saman verður eldgos. Svo vildi til að tröllahljómsveit og álfahljómsveit voru bókaðar á sama stað á sama tíma. Þegar þessar tvær hljómsveitir spiluðu saman varð þetta líka stóra eldgos í Kötlu samkvæmt þjóðsögu krakkanna.

Söngsmiðjan er þó aðeins einn liður í sönghátíðinni í Hafnarborg sem hófst í síðustu viku. „Þetta er hátíð sem að heldur upp á list raddarinnar og þar sem fólk syngur einsöng og syngur samsöng og barrokk tónlist en mjög mikið íslenska tónlist, íslenskt þema er svona gegnum gangandi í gegnum hátíðina í ár og hátíðin er hluti af fullveldishátíðinni,“ segir Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, söngkona og stjórnandi Sönghátíðar í Hafnarborg. 

Upphitun í fullum gangi.Visir/Elín



Fleiri fréttir

Sjá meira


×