Enski boltinn

Shaqiri fer til Bandaríkjanna í stað Firmino

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Getur þessi spjarað sig hjá Liverpool?
Getur þessi spjarað sig hjá Liverpool? Vísir/Getty
Roberto Firmino mun ekki taka þátt í æfingaferð Liverpool til Bandaríkjanna. Xherdan Shaqiri mun taka hans stað í hópnum.

Firmino komst í 8-liða úrslit á HM í Rússlandi með brasilíska landsliðinu og hann fær því sumarfrí til loka júlímánaðar. Hann mun koma til móts við Liverpool liðið í fjögurra daga æfingaferð í Frakklandi eftir að Liverpool snýr aftur frá Bandaríkjunum.

Sviss féll úr keppni á HM í 16-liða úrslitunum og mun Shaqiri, sem skrifaði undir hjá Liverpool í vikunni, því ekki fá eins langt frí og Firmino. Svisslendingurinn tekur því sæti Firmino í æfingahópnum sem fer til Bandaríkjanna.

Liverpool mætir Manchester United, Borussia Dortmund og Manchester City í þremur æfingaleikjum í Bandaríkjunum. Fyrsti leikurinn er gegn Borussia Dortmund 22. júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×