Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Mikil fagnaðarlæti brutust út í París þegar Frakkar urðu heimsmeistarar í fótbolta eftir fjögur - tvö sigur gegn Króötum í dag. Þetta er í annað sinn sem Frakkar hreppa titilinn en fylgst verður með fögnuðinum í fréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Einnig verður rætt við framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs sem segir gildandi samkeppnislöggjöf úrelta. Mikil samþjöppun blasir við á dagvöru- og eldsneytismarkaði, nái fyrirhugaðir samrunar sem tilkynnt hefur verið um nýverið, fram að ganga.

Þessi þróun kemur ekki á óvart að sögn framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs. Þetta og fleira í kvöldfréttum Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×