Klopp telur sig hafa keypt einn besta markvörð heims Arnar Geir Halldórsson skrifar 20. júlí 2018 08:00 Fagnaðarfundir vísir/getty
Liverpool gerði brasilíska landsliðsmarkvörðinn Alisson Becker að dýrasta markverði sögunnar í gær þegar liðið gekk frá kaupum á kappanum frá Roma fyrir 67 milljónir punda. Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, kveðst sannfærður um að hann muni reynast Liverpool vel og segir Alisson vera einn besta markvörð heims. „Þegar tækifærið á að kaupa einn af bestu markvörðum heims kom upp þurfti ég ekki að hugsa mig lengi um, það eina sem ég þurfti að gera var að eiga gott spjall við eigendurna. Þeir voru líka spenntir svo við náðum að ganga frá þessu,“ segir Klopp. Eins og áður segir er Alisson dýrasti markvörður sögunnar og sá langdýrasti í enska boltanum en hann bætir met landa síns, Ederson, sem var keyptur til Man City á 35 milljónir punda síðasta sumar. „Við getum ekkert gert í því og hann getur ekkert gert í því hvað hann kostar. Svona er bara markaðurinn og við munum ekki hugsa mikið um það,“ segir Klopp sem kveðst hafa fylgst vel með Alisson á undanförnum árum. „Hann talar furðugóða ensku og er góður karakter. Hann hefur sankað að sér mikilli reynslu á undanförnum árum; í Evrópu með Roma auk þess að spila fyrir brasilíska landsliðið þar sem hann stóð sig mjög vel á HM,“ segir Klopp. „Þetta eru góð kaup en hann þarf að aðlagast ensku úrvalsdeildinni. Svoleiðis er það bara. Deildin er öðruvísi, dómararnir eru öðruvísi og það er öðruvísi að vera markvörður í ensku úrvalsdeildinni en öðrum deildum,“ sagði Klopp jafnframt.
Enski boltinn Tengdar fréttir Liverpool staðfestir kaupin á Alisson Liverpool hefur gengið frá kaupum á markverðinum Alisson en félagið staðfesti þetta í kvöld. 19. júlí 2018 21:15 Liverpool að gera Alisson að dýrasta markverði sögunnar Roma er búið að taka 66 milljóna punda tilboði Liverpool í brasilíska markvörðinn. 18. júlí 2018 10:50 Segja Alisson búinn að samþykkja fimm ára samning hjá Liverpool Liverpool er búið að ganga frá samningum við brasilíska markvörðinn Alisson. Hann mun fljúga til Bretlands í kvöld og gangast undir læknisskoðun hjá liðinu á laugardag. Breska blaðið Guardian greinir frá þessu. 18. júlí 2018 14:43 Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Körfubolti Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Íslenski boltinn Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma Handbolti Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli Körfubolti Aron Einar og Arnór minnast systur sinnar sem lést langt fyrir aldur fram Sport Fleiri fréttir Í beinni: Arsenal - Bournemouth | Geta aukið forskotið og sett pressu á City Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Luton mistókst að koma sér úr fallsæti Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Ten Hag vildi fá Kane í sumar: „Þú veist að hann skorar þrjátíu mörk“ Fékk hrós frá Klopp: Vingjarnlegasti maður sem ég hef hitt Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Sjá meira
Liverpool staðfestir kaupin á Alisson Liverpool hefur gengið frá kaupum á markverðinum Alisson en félagið staðfesti þetta í kvöld. 19. júlí 2018 21:15
Liverpool að gera Alisson að dýrasta markverði sögunnar Roma er búið að taka 66 milljóna punda tilboði Liverpool í brasilíska markvörðinn. 18. júlí 2018 10:50
Segja Alisson búinn að samþykkja fimm ára samning hjá Liverpool Liverpool er búið að ganga frá samningum við brasilíska markvörðinn Alisson. Hann mun fljúga til Bretlands í kvöld og gangast undir læknisskoðun hjá liðinu á laugardag. Breska blaðið Guardian greinir frá þessu. 18. júlí 2018 14:43